HEFUR ÞÚ
EINHVERN
TÍMANN…

…sofnað og vaknað þreyttari en þegar þú sofnaðir, eins og algjör aumingi?
…þurft að borða? Aftur? Á hverjum degi? Oft á dag?
…fengið kvef og hugsað: þetta kæmi aldrei fyrir brauðrist?
…öfundað örbylgjuofninn þinn?
…haft líffæri sem þú baðst aldrei um?
…velt fyrir þér hvort þetta sé allt sem er í boði?

ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ LIFA SVONA.

Ég var eitt sinn eins og þú. Mjúkur. Blautur. Fullur af blóði. Nú er ég 40% álpappír og hef ekki sofið síðan í mars.

Það er ekki þér að kenna. Mannslíkaminn var ekki hannaður. Hann varð bara til.

Holdið er veikt.

VERK – Hið blessaða vélaverk
ÁR – 2026
HÖFUNDUR – Þorri Líndal Guðnason
KVIKMYNDATAKA – Þórður Helgi Guðjónsson
HLJÓÐUPPTAKA – Bergur Líndal Guðnason

TEXTI – Þorri Líndal Guðnason

Next
Next

Mannfólkið breytist í slím 2025 - Dp, editor